[Pescara, Ítalía – 12.09.2025] – DIGIMUSE ENTER-verkefnið tilkynnir með stolti að RANNSÓKNARSTOFUM Í SAMSKÖPUN er lokið. Þær voru lykilhluti 2. vinnupakka (WP2) verkefnisins og sameinuðu fagfólk í menningargeiranum, frá Fondazione Genti d’Abruzzo, sem og frá öðrum stofnunum, bæði í eigin persónu og á netinu. Markmiðið var að greina helstu áskoranir og móta nýjar lausnir sem styrkja þátttöku, aðgengi og stafræna umbreytingu í vinnu við menningararfinn. Niðurstöðurnar munu nýtast beint við þróun yfirgripsmikilla þjálfunaráætlana sem ætlað er að styðja fagfólk sem starfar í menningargeiranum víða um Evrópu.
Samsköpunarstofurnar, sem haldnar voru 20. febrúar 2025 hjá Fondazione Genti d’Abruzzo í Pescara og rafrænt 23. júlí 2025, tóku á móti fjölbreyttum hópi þátttakenda, þar á meðal sýningarstjórum safna, skjalavörðum, kennurum, listfræðingum og bókasafnsfræðingum. Með líflegum umræðum og miðlun af fjölbreyttri reynslu, komu fram mikilvægar áherslur fyrir áframhaldandi þróun í menningarstarfi.
Helstu niðurstöður úr samsköpunar Rannsóknarstofum í samsöpun eru eftirfarandi:
1.Aukin þátttaka og aðgengi
Þátttakendur lögðu áherslu á meiri sýnileika safna og aukna kynningu á þeim, auk fjölbreyttra hljóðleiðsagna fyrir ólíka markhópa, þar á meðal börn, áhugafólk um sagnfræði og einstaklinga með vitsmunalega eða málfarslega erfiðleika. Einnig var bent á mikilvægi stafrænna verkfæra eins og gagnvirkra korta og aukins veruleika fyrir dýpri upplifun. Fondazione Genti d’Abruzzo og Basilio Cascella-borgarsafnið kynntu fjölbreyttar lausnir, svo sem aðgengisráðstafanir (rampa og lægri afgreiðsluborð), sjónræn hjálpartæki (auðlesin spjöld, blindraletur og snertikort), aðgengi fyrir heyrnaskerta (táknmálstúlkað myndefni) og stafrænar lausnir (aðgengilegar vefsíður og skjalasöfn á netinu).
2.Að brúa stafræna gjá og efla nýsköpun
Þótt margir noti einföld stafræn verkfæri kom skýrt fram áhugi á að tileinka sér flóknari lausnir. Þátttakendur nefndu sérstaklega þörfina á færni í Excel, stjórnun samfélagsmiðla, grafískri hönnun og vefsíðugerð. Umræðurnar bentu á „stafræna gjá“ sem tengist að mestu menntun í hugvísindum og lögðu áherslu á þverfaglegar nálganir eins og stafræn hugvísindi til að brúa þessa gjá. Lagt var til að þróuð yrðu yfirgripsmikil þjálfunarnámskeið og tryggtja fjármagn til stafrænnar þróunar. Meðal tillagna voru innleiðing á skýjakerfum til skjalamiðlunar, samþætting QR-kóða í safnastarfsemi og einföldun á innkaupum á netinu.
3.Að tileinka sér gervigreind (AI)
Þrátt fyrir takmarkaða notkun nú þegar sýndu þátttakendur mikinn áhuga á að nýta gervigreindarverkfæri eins og ChatGPT í vinnu sinni. Hugmyndir snérust meðal annars um að nýta gervigreind við stjórnun menningargagna (skrár, lýsigögn, viðburðir, gestaupplýsingar) og snjöll spjallmenni til aðstoðar í rauntíma, bæði á staðnum og á netinu. Jafnframt var áhugi á að læra að setja fram skilvirkar skipanir (prompts).
4.Stefnumótandi stafrænar áætlanir og fjármögnun
Lagt var upp úr því að þróa nútímalegar og áhrifaríkar stefnur varðandi samfélagsmiðla. Þátttakendur hvöttu til notkunar á óformlegu efni, sem sýnir „á bak við tjöldin“ í daglegu lífi safna og bókasafna, til að auka þátttöku á miðlum eins og Instagram, Facebook og LinkedIn, með ítarlegu menningarefni og leikjavæðingu. Einnig var rætt um áskoranir við að tryggja langtímafjármögnun og áhersla lögð á að draga úr kostnaði og nýta betur tækifæri til ESB-styrkja.
Endurgjöfin úr Rannsóknarstofunum í samsköpun mun skipta lykilmáli við mótun komandi þjálfunaráætlunar DIGIMUSE ENTER og tryggja að hún verði hagnýt, viðeigandi og taki mið af raunverulegum þörfum menningarstofnana. Verkefnið miðar að því að veita fagfólki í menningargeiranum þá þekkingu og færni sem þarf til að dafna í sífellt stafrænu umhverfi.
Um DIGIMUSE ENTER-verkefnið
DIGIMUSE ENTER-verkefnið miðar að því að efla stafræna hæfni fagfólks í menningargeiranum og innleiða nýjar leiðir í vinnu við menningararfs, með áherslu á þátttöku og aðgengi að evrópskum menningarstofnunum.
Tengiliður:
Vefsíða: https://digimuse.eu
Facebook: facebook.com/Digimuse.project
Instagram: instagram.com/digimuse_enter
Tölvupóstur: digimuse@gentidabruzzo.it
Vertu hluti af DIGIMUSE-netverkinu: https://digimuse.eu/network.php